160 fm einingahús
Reist á Egilsstöðum 2019
Teikningar & Skýringar
Þessi teikning er stækkuð mynd af 160 fm húsi. Húsið var reist á Egilsstöðum árið 2019 og var klárað rétt fyrir jólin.
Samskonar hús með breytingum var reist á Árskógssandi í lok árs 2021 sem og Borgarfirði Eystra 2022.
Húsið er klætt með dökkri Cedral fíbersementsklæðningu. Gluggar eru úr sérvöldu timbri.
Innifalið í grunnverði hússins
- Framleiðsluteikningar frá verksmiðju
- Verksmiðjuframleiddir útveggir með lektum og rakavörn að innanverðu og utanverðu
- Steinullareinangrun komin í útveggi
- Utanhússklæðning formáluð Fíbersement 10-12 mm
- Allt gifs á innanverða útveggi ásamt 12mm OSB undir gifsi
- PVC Gluggar með tvöföldu gleri koma ísettir í einingar
- Innveggir verksmiðjuframleiddir ásamt steinullareinangrun
- Allt gifs á innveggi ásamt 12mm osb undir gifs
- Þaksperrur/kraftsperrur
- Lektur í loftin (þak) undir gifs (raflagnabil)
- Rakavörn
- Gifs í loftin, eða annað efni skv vali
- Steinullareinangrun í þak 250 mm
- Þakklæðning 18-22mm ofan á sperrur/kraftsperrur
- Icopal Balbit þakdúkur ofan á OSB
- Útihurðir PVC eða viðarhurðir og rennihurðir úti
- Festingar og vinklar við sökkul og vinklar á sperrur
- Skrúfur og festingar
- Flutningsgjöld til landsins og á byggingarstað
- Tollar og gjöld
- Flutningstryggingar
160 fm Einingahús
Verð frá kr 24,9 millj. *
*) Verð með tollum og aðflutningsgjöldum og miðast við afhendingu á byggingarstað en án uppsetningar í desember 2023 sbr efnislýsingu.
Uppsetning á húsinu er um 4,7 millj. miðað við að menn frá verksmiðju setji upp húsið.
Hvers vegna velja okkur?
HRAÐI
Verksmiðjuframleiðslu er auðveldara að stjórna og aðlaga að hönnun húsa og afhendingartíma.
Sparar tíma og peninga. Hægt að byrja á sökklum meðan á framleiðslu stendur.
Hraðar öllu uppsetningarferli og minnkar efnisrýrnun verulega.
GÆÐI
Eftirlit í framleiðslu. Unnið samkvæmt viðurkenntum gæðakerfum.
Gluggar eru settir í einingarnar í verkmiðju. Innveggir eru verksmiðjuframleiddir.
Allt efni og íhlutir eru CE vottaðir.
REYNSLA
Verkmiðjan hefur yfir 25+ ára reynslu af framleiðslu og uppsetningu á timbureiningahúsum. Svíþjóð, Noregur og Ísland eru helstu markaðir.
Emerald ehf hefur komið að byggingu og innflutningi á einingahúsum síðan 2002.
Yfir 70 hús hafa verið reist víðsvegar um land á okkar vegum.
PERSÓNULEG NÁLGUN
Sérhvert verkefni er einstakt. Verksmiðja og Emerald ehf bjóða persónulega þjónustu. Okkar verkefni er að skila góðu dagsverki. Það hefur okkur tekist.
UPPSETNING
Sérfræðingar frá verksmiðju geta komið og sett upp húsið á þegar tilbúinn sökkul og plötu.
GRÆN TÆKNI
Timburhús minnka kolefnaspor. Aukið einangrunargildi. Kostir timbureiningahúsa eru miklir. Vottað efni.
Hönnun hússins
Okkar menn