162 fm frístundahús
Verslunarfélagið Emerald ehf, kynnir með stolti 162 fm frístundahús. Þetta tiltekna hús kostar frá 20 millj. komið á byggingarstað, tilbúið til uppsetningar.
Húsið er verksmiðjuframleitt og kemur frá Lettlandi. Allt efnisval er mjög vandað og í samræmi við íslenska byggingareglugerð.
Hægt er að fá húsið með breytilegu efnisvali allt eftir óskum kaupenda. Ber þar helst að nefna:
- Glugga og hurðir
- Utanhússklæðningu margar gerðir
- Innréttingar og gólfefni er hægt að fá
Við bjóðum fjölda gerða sumarhúsa fyrir kaupendur s.s
- Hefðbundin hús frá 15-100 fm
- Funkis hús
- Hús samkvæmt hugmyndum kaupenda
Sérfræðingar á vegum verksmiðju geta komið og sett upp húsin.