Djúpivogur
Glæsilegt vel hannað raðhús rís hratt á Borgarlandi Djúpavogi.
Húsið er reist af Samsteypufélaginu og flutt inn frá Lettlandi.
3 snotrar rúmgóðar rúmlega 100 fm íbúðir með 3 svefnherbergjum eru í húsinu. Hugsað er fyrir hverju smáatriði.
Húsið er klætt með álklæðningu ásamt standandi viðarklæðningu á völdum stöðum.
Hönnuðir eru Arkibygg arkitektar.