Parhús
Parhús 2 x 147 fm
Vegna fjölda fyrirspurna um parhús, þá birtum við hérmeð einfalda hönnun á 300 fm parhúsi.
Um er að ræða hús sem hannað er með sama vandaða sniði og útfærslu í efnisvali og önnur hús frá okkur.
Leitast hefur verið við í þessari útfærslu að hafa einfaldleikann og nýtingu með sem besta móti. Hægt er að breyta teikningum í samráði við okkar arkitekt.
Endilega hafið samband við okkur og óskið frekari upplýsinga.
Verð um 31 milljónir í febrúar 2019
Hvað er innifalið í verðinu?
- Framleiðsluteikningar frá verksmiðju
- Verksmiðjuframleiddir útveggir með lektum og rakavörn að innanverðu og utanverðu
- Steinullareinangrun komin í útveggi
- Utanhússklæðning standandi timbur, kemur ásett frá verksmiðju
- Allt gifs á innanverða útveggi ásamt 12mm OSB undir gifsi
- PVC Gluggar með tvöföldu gleri koma ísettir í einingar
- Innveggir verksmiðjuframleiddir ásamt steinullareinangrun
- Allt gifs á innveggi ásamt 12mm osb undir gifs
- Þaksperrur/kraftsperrur
- Allar lektur í loftin (þak) undir gifs (raflagnabil), rakavörn
- Allt gifs í loftin
- Steinullareinangrun í þak 250 mm
- Þakklæðning 18-22mm ofan á sperrur/kraftsperrur
- Icopal Balbit vandaður þakpappi ofan á OSB 18mm.
- Útihurðir PVC eða viðarhurðir og rennihurðir úti
- Allar festingar og vinklar við sökkul og vinklar á sperrur
- Allar aðrar skrúfur og festingar
- Flutningsgjöld til landsins
- Tollar og gjöld
- Flutningstryggingar
Hvað er ekki innifalið í verði?
- Bílskúrshurð – hægt að fá
- Innihurðir – hægt að fá
- Járn á þak ásamt rennum og niðurföllum – keypt innanlands tilboð Áltak
- Arkitektateikningar – keyptar af arkitekt
- Verkfræðiteikningar – keyptar af verkfræðingi
- Raflagnateikningar – keyptar af raflagnahönnuði
- Uppsetning á húsinu – sérhæfðir menn frá verksmiðju geta sett upp húsið. Fast verð.
- Sökklarnir – innlendir verktakar gera tilboð
- Lóðin
Sendið okkur skilaboð
[contact-form-7 id=”147″ title=”Contact form 1″]