Verðdæmi einingahúsa

SVEIGJANLEIKI Í FYRIRRÚMI

ÍTARLEG TILBOÐ OG KOSTNAÐARÁÆTLANIR

Við reiknum dæmið til enda

​Verslunarfélagið Emerald ehf gerir áætlað verðtilboð í hús skv hugmyndum og útlitsteikningum og veitir almenna ráðgjöf við val á húsi sem hentar kaupendum og lóðaskilmálum.

Við bendum á byggingameistara, verkfræðing og arkitekt sé þess óskað og leiðbeinum um val þeirra.

Uppsetningartilboð og verkkostnaðartilboð eru gerð af viðkomandi verktökum.

Emerald ehf hefur aðgang að sérhæfðum verktökum og byggingameisturum í uppsetningar einingahúsa sem og gerð sökkla og lagna.



Verðdæmi 189 fm einingahús

Berið saman verð og gæði

Byggingarstig 6 - Fullgerð án lóðarfrágangs

Þegar rætt er um verð, þá er mörgu kastað fram af sölumönnum einingahúsa almennt.

Látið ekki blekkjast af fermetraverðum sem gefin eru upp, því þau segja í raun lítið sem ekkert.

Skoða verður dæmið í heild sinni og fá sundurliðaðar kostnaðaráætlanir.

Við höfum sent út þannig áætlanir til banka og viðskiptavina. Reynslan hefur sýnt að það er að marka þær áætlanir enda um föst tilboð í stærstu verkþættina.

Þar má til dæmis nefna uppsetningar, en við gerum tilboð á föstu verði.

Í þessu verðdæmi er um að ræða 189 fm hús komið á byggingarstað, með uppsetningu en án lóðarkostnaðar.

Efnisval er í hæsta gæðaflokki bæði hvað varðar húsið sjálft sem og innréttingar.

Í þessari áætlun er reiknað með að innréttingar og gólfefni kosti allt að 9,5 milljónum.

Verð miðast við tilboð í ágúst 2022



Heildarverð með uppsetningu

189 fm fullgert hús án lóðar og lóðarfrágangs

Kr 62.3 millj.


Hönnun og meistari
Sökklar og lagnir
Húsið komið á byggingarstað
Hitalagnir
Raflagnir
Uppsetning
Allar innréttingar
Járn á þak, rennur og niðurföll
Öll tæki og búnaður
Allir skápar og innréttingar
Allar flísar og gólfefni